02ágúst

hm

Er semsagt búin að búa til nýja síðu til þess að hýsa sögum og myndum frá Kanalandinu.

Hana er að finna hér, lykilorðið færðu hjá mér.


out 


sh

02. ágúst 2007 klukkan 21:36
Sara Haynes
1 athugasemd
24maí

mar mar is

Jæja..þá er ég stúdent, pabbi kominn og farinn aftur og besti dagur lífs míns búinn. En það er ekki allt búið því á morgun fljúgum við svo til Marmaris. Djöfull verður það gaman. Held við séum öll búin að vera telja niður dagana frá því þeir voru svona 100. Núna er 1 dagur þangað til. Á ekki eftir að geta sofnað í nótt. Þá horfi ég bara á Melroce þar sem ég missti af því í dag..já ég veit..lúði.

Þetta er búinn að vera svo skemmtilegur tími, var ég búin að segja það kannski? Skemmtilegur tími? Hann gekk þannig fyrir sig..Á miðvikudeginum 16.maí losnaði ég við efri spangir, (sem var mjög gaman), og kíkti til afa sem átti 79ára afmæli og svo um kvöldið var próflokadjamm Aðalsins. Það var fínasta skemmtun. Ég hélt að fimmtudagurinn ætlaði aldrei að líða en á föstudeginum kom svo pabbi. Mæja vinkona hans og mömmu kom í heimsókn um kvöldið og voða fjör. Það var skálað þó ég hafi ekki tekið þátt í því..án gríns. En það var mjög fínt. Á laugardeginum var auðvitað útskriftin sjálf. Við mættum í skólann kl.11 en hin fyrir 14 og vá hvað ég vorkenndi pabba að sitja þarna að hlusta á ræðurnar og skilja ekkert. Allavega á gamla krúttið með plásturinn. En þetta hafðist og við fórum svo í Perluna að borða. Ef ég mætti breyta einhverju við þann kvöldverð þá dettur mér ekkert í hug. Án gríns.

7.jpg 

33.jpg
Þetta mun vera fjölskyldan mín..grunnurinn allavega : )

elska tessa

45.jpg

Svo komum við heim í kaffi og húfuköku..
kakan min
..og einsog sumir taka kannski eftir stendur ekki millinafnið, hún er farin að kunna þetta hún móðir mín : )

Svo var haldið niðrí bæ..mjög gaman. Allir með húfuna uppi. Myndavélinn fékk hinsvegar ekki að fylgja með niðrí bæ, góður siður þar á ferð.

Ég hafði (major) væntingar um þennan dag..en vá.

65.jpg
Erum við ekki lík? Aren´t we corpse? nei djók. ýkt lélegt ég veit.

Svo vorum við bara að slappa af..pabbi kíkti upp á völlinn sem er ekki lengur, horfðum á myndir, fórum og keyptum íslenkt dót sem hann tók með út (hann elskar harðfisk og lax og svona), fórum í myndatöku á mánudaginn og svo var matur hjá ömmu og afa um kvöldið. Hann fór semsagt á þriðjudaginn og ég veit ekki hvenar ég sé hann aftur..aww.

Það má segja að majorinn hafi fengið íslenkst veður beint í æð. Rigning, rok, sól, snjór..allt á eiginlega sama tíma. Núna er líka rokrassgat úti en mér er svo alveg sama..sól á næstu dögum hjá mér, starting tomorrow. Kannski best að fara pakka..þeir sem þekkja mig vita að ég er ekki duglegust að pakka á réttum tíma fyrir brottför. Ræð ekki við þetta..ehh.

Semsagt..farin að pakka ..vij : )

58.jpg
sarasviðhaus



..já, setti 4 albúm inn.. Fyrsta kveðjupartý Hörpu, ósabotnaferðina okkar Hjálmars, e-ð síðan úr fs..þegar við vorum að taka upp dimmissio og svona og svo útskriftin og co.

kvedjupartyhrpu061.jpg allskonarsjitapril015.jpg ellen rosa fyrsta fjolsk.myndin i slatta ar

24. maí 2007 klukkan 20:27
Sara Haynes
4 athugasemdir
16maí

yeah

Hvað er málið með flugvélamat?

Nei djók.

Hvað er málið með nautaat?

Án djóks.

Ég datt inn á þátt á skjáeinum..world´s craziest videos eða e-ð álíka. Það er ekki frá sögu færandi nema að það var verið að sýna frá svona nautaati þar sem fólki er boðið upp á að setjast við borð á nautavellinum og spila póker. Hver vill spila póker í miðju nautaati? Allavega, sagt var frá nokkrum hetjum sem buðu sig fram og sátu þarna einsog fífl að spila póker með glorhungrað og pirrað naut dansandi í kringum sig. Það kom kannski ekki á óvart að nautið réðst á liðið og þau lifðu af, en hausaskinnið og eyrað flagnaði af einum. Þá átti hann að hafi verið voða hetja og hann var að segja reynslusögu sína einsog e-ð fórnarlamb. Allir nautabanar eru taldar hetjur af sumu fólki. Það er svo mikið kjaftæði. Þetta eru ekkert nema fávitar. Þó að þessi naut verði síðan étin, þá alveg hægt að drepa þetta bara snöggt. Ekki að vera leika sér með greyið skepnurnar og stinga þær. Asnalegt lið.

Anywho..það er ekkert nema gleði hér á bæ þessa dagana. Náði öllum prófum og það svo útskriftin er á hreinu : ) Búin að sækja húfuna og svona. Í dag var svo nóg að gera, losna við efri spangir, plokkun, litun og afi afmæli. Svo í kvöld er próflokagleði Aðalsins á Yello..svona þess vegna sem ég var að blogga hér..auglýsa það aðeins. Get svo ekki beðið eftir að sjá pabba á föstudaginn og svo útskriftin á laugardaginn og allt sem henni fylgir. Ekkert nema gaman. En já þannig að..





Sé ykkur þar..

sh
16. maí 2007 klukkan 19:20
Sara Haynes
9 athugasemdir
01maí

bittersweet

Næstum mánuður frá síðasta bloggi..hm. Hef heldur ekki haft mikinn tíma í neitt annað en skólann..sem er mjög gaman, oftast. Ætla setja þetta upp einsog hún Sunway mín sem er komin með nýja síðu once again.

·         Páskar..það eru komnir páskar..nei djók. Fór í bústað og á Björk. Mjög gaman allt saman.

·         Peter, Bjorn & John..hm hefði betur átt að sleppa þeim.

·         Á afmælisdags bróður míns var svo árshátíðin haldin, fínasta skemmtun þar en ekki sömu sögu að segja niðrí bæ.

·         Námsmaraþonið, það var nú ekki mikið lært þar, allavega af minni hálfu. Held líka að enginn hafi safnað áheitum..haha.

·         Aðalspartý hjá Lilju í Grindó..mjög gaman þann tíma sem ég var því síðan fórum við nokkur á Gus Gus. Ég varð að fara aftur á þá. Það var erfitt að toppa fyrri tónleikana en þeir voru við það. Það vantaði líka Palla en hann var að skemmta í Kef og Grindó.

·         Dimmission! Allt í kringum það var mjög mjög gaman. Frá því að gera það í því að sýna það. Þemað hjá okkur var sjóræningjar og það voru allir ofursvalir. Og þreyttir. Ég fór reyndar ekki í vakninguna en vakti samt alla nóttina með vídjócrewinu hehe.. Svo þegar allir voru mættir í skólann um 7leytið, rústuðum við stofunum. Eða rústa, hvolfa borðum og krota á töfluna og svona. Sungum svo e-ð frumsamið lag. Mjög gaman. Dagurinn endaði svo á Síðustu kvöldmáltíðinni og ég held ég geti sagt fyrir hönd allra sem voru þarna að þetta var bara eitt skemmtilegasta kvöld sem við höfum upplifað svo ekki sé meira sagt.

·         Í gær var síðasti skóladagur minn í FS, sem var já kjánalegur á köflum hvað varðar kennara. Um leiðog þetta er orðið gaman er maður að hætta.

·         Við Ellen ákváðum í byrjun annar að seinasta daginn myndum við fá okkur hamborgara þar sem við höfum aldrei gert það í FS. Og við stóðum við það..hambó og kjúlló. Jee. En í gær var svo stuttur dagur og þá gat ég ekki annað gert en að fá mér eina ladyloku.

·         Aðalsblaðið fer að koma út. Spennt yfir að sjá hvernig það tekst til.

·         Styttist í að kosningarnar verða búnar. Djöfull, ég var farin að græða á þessu. Bjór, vatn, kaffi, blöðru, usb lykil, armband, nælur, penna og pulsur. Bull.

·         Einsog Sólveig er ég líka komin með ógeð af speisinu. Sátt með það.

·         Í gær fjárfesti ég í sólgleraugum með styrk. Þá sé ég hvað ég er að gera í sólinni í Tyrklandi.

·         Svo eru það bara prófin æðislegu. Fyrsta á fös og síðasta er seinasta prófdag. Jeij.  Og þá er ekki mikið eftir nema góðir tímar. Próflokadjamm aðalsins (auglýst síðar), pabbi að koma í heimsókn..vij : ) ..og svo auðvitað útskriftin og Maaaarmariis. Ómæh. Hlakka til.

·         Og svo kannski bara Cali í haust? Hm..vona það allavega.

 

Jæja kona hinum megin við hafið, komin með betri hugmynd um það sem ég er að gera þessa dagana? Svosem ekkert merkilegt miðað við það sem þú ert að upplifa þessa dagana..hehe. En samt.

sh

 

Æjá, setti inn einhver þrjú myndalbúm. Hef ekki verið sú duglegasta við það undanfarið..

afmlifridu022.jpg gusgus068.jpg pskafr07094.jpg

01. maí 2007 klukkan 14:29
Sara Haynes
4 athugasemdir
04apríl

pop the glock

hm..

Kolkrabbar eru ekki góðir. Eða þúst. Hef ekki smakkað kolkrabba, en þeir eru vondir. Í nótt tók kolkrabbinn hér upp á því að læðast aftan að einum krabbanum, vefja örmunum utan um bakið á honum og nota restina af örmunum til að éta innan úr maganum hans, eða krabbaskelinni. Eftir lá krabbahræ sem ég þurfti svo að fjarlægja áður en tuttugu krakka hópur gæti komið að líkinu.



Nei ok, þetta er ekki það eina sem ég er að gera. En svona.

Gus Gus verða aftur á Nasa 21.apríl. Spurning um að fara aftur, djöfull var gaman síðast. Síðan er það Björk og Hot Chip. Fæ smá forskot á það á fös..úú.

En já horfið á kastljós í köld.

Það er búið að draga mig á páskadjamm.

boj


sh

04. apríl 2007 klukkan 17:28
Sara Haynes
4 athugasemdir
13mars

i´m ryans father

ég nenni ekki að læra og ég nenni ekki að hafa þetta veður ennþá svona.

hlakka til að komast á marmaris..mar. marmar.is. nei djók.
hlakka samt til.

hlakka líka til..
helgarinnar
afmælanna sem ég er að fara í
gus gus
peter, bjorn & john
hitta pabba
útskriftar
hróa
ofl.


hee..

það eru einhver þrjú albúm á myndasíðunni.. á eftir að setja frá afmæli kat og eddurósarlangplanaðapartýi

3.jpg
88 á mið kl.21

og

Warner Bros. Pictures' 300
fös kl.22.30 í kefbíó


oj hvað mig langar ekki að sjá norbit..hélt það væri komið meira en nóg af svona kjánagervi myndum



ekki? okbæ


sh
13. mars 2007 klukkan 16:14
Sara Haynes
7 athugasemdir
21febrúar

það er alveg hægt..

en til hvers?

Nei ok..búin að setja myndir frá emo/goth kvöldinu sem ég hélt. Það tókst bara vel til, fyndið að sjá alla í svörtum netafötum og með gaddaólar og eyeliner. Smá tilbreyting.

emogoth030.jpg ofur

http://s56.photobucket.com/albums/g175/wanda-3/

Vá það hefur aldrei verið svona mikið að læra hjá mér áður..allavega ekki svona mikið að lesa. Þannig að það er svona það eina sem ég hef verið að gera undanfarinn mánuð. Lesa og læra. Og svo reyndar eru helgarnar ekkert búnar að vera edrú einsog planið var. En ég meina..útskriftarönnin. Hún á að einkennast af bókum og bjór. Var það ekki annars?

Næsta helgi verður engin undantekning..það er kaffihúsakvöld á fim, sé til með það. Glæsiball á fös og bjórdrykkja á lau býst ég við. Á milli: læra. Svo á sun verður maður auðvitað að vera í Fræðó við opnun "Jean-Baptiste Charquet hornsins" eða hvað hann heitir Frakkinn. Samt sem áður áhugavert.

Talandi um Frakka. Fór á Perfume í gær. Án efa ein furðulegasta mynd sem ég hef séð. Veit ekki alveg hvort mér fannst hún ógeðslega kjánaleg og asnaleg eða ógeðslega góð og töff.
Þegar ég hugsa allavega um myndina sé ég fyrir mér ilmvatns-perrann eða snillinginn standa í bláum flauelsfötum (minnti mig á Litla Prinsinn) og hundrað ef ekki fleiri manns að klæmast eða njóta ásta í kringum hann. Þannig að þetta er svona..já..mynd sem maður annaðhvort hlær að eða dáist (dæst?) að..af. Veit ekki. En ég gerði bæði. Held ég.

Þegar ég var í Frakklandi fór ég í  ilmvatnsverksmiðju. Man ekki það mikið eftir því, en þar var hægt að fylgjast með ferlinu hvernig ilmvatn er framleitt og unnið. Áhugavert..

En já..ætla skilja ykkur eftir með honum vini mínum hér.

sh
21. febrúar 2007 klukkan 23:25
Sara Haynes
2 athugasemdir
11febrúar

geggjó eggjó

Meiri myndir.
Einsog vanalega. Ekkert blogg. Bara myndir frá gærkvöldinu.

splashfeb042.jpg
smart

http://s56.photobucket.com/albums/g175/wanda-3/

sh

11. febrúar 2007 klukkan 15:57
Sara Haynes
9 athugasemdir
01febrúar

junita bonita

Er semsagt loksins búin að setja inn myndir frá bústaðarferðinni. Njótið.

siggi snakur

http://s56.photobucket.com/albums/g175/wanda-3/


Annars bara..er nóg að læra og svona. Þannig að, já..

sh
01. febrúar 2007 klukkan 22:30
Sara Haynes
4 athugasemdir
26janúar

más que nada

Þetta er smá fyndið..

http://www.youtube.com/watch?v=zq7Nbbz_Oxs


sh



ú 120 dagar í marmaris..

26. janúar 2007 klukkan 01:06
Sara Haynes
5 athugasemdir

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Leit